Hafmærin í tjörninni
0.0
( 0 )
Islandsk
En del af Grimmsævintýri
Einu sinni var malari sem áður var hamingjusamur og auðugur en var nú orðinn félítill og áhyggjufullur. Dag einn sér hann fagra hafmey stíga upp úr tjörninni við myllustífluna. Hann verður hræddur en ...Forlagsbeskrivelse af Hafmærin í tjörninni
Einu sinni var malari sem áður var hamingjusamur og auðugur en var nú orðinn félítill og áhyggjufullur. Dag einn sér hann fagra hafmey stíga upp úr tjörninni við myllustífluna. Hann verður hræddur en hafmærinni tekst að róa hann með hljómfagri röddu sinni og sannfærir hann um að hún geti bjargað honum úr fjárhagskröggunum og gert hann hamingjusamari en hann hafi nokkurn tímann verið, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Nú voru góð ráð dýr því skilyrði hafmærinnar, sem virtust léttvæg í upphafi, reyndust malaranum afar þungbær þegar á leið.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
Uddrag
Prøvelyt
Hafmærin í tjörninniDetaljer
Serie
Forlag
SAGA Egmont
ISBN
9788728038697
Sprog
Islandsk
Originaltitel
Hafmærin í tjörninni
Udgivelsesdato
29-01-2022
Format
Lydbog
Filtype
zip_mp3
DRM beskyttelse
DigitalVandmaerkning
Datamængde
10495 KB
Varenr.
2992640
EAN nr.
9788728038697
Varegruppe
Lydbøger