Svipurinn hennar
0.0
( 0 )
Islandsk
En del af Klassísk rómantík
Þessi saga á sér stað á Viktoríutímabilinu í ensku samfélagi. Ung Verenika giftist Roy, Lávarðinum af Clynord. Hann á ekki stóra fjölskyldu en á tvö stjúpsystkini sem öfundast út í hina ungu og saklau...Forlagsbeskrivelse af Svipurinn hennar af Harriet Lewis
Þessi saga á sér stað á Viktoríutímabilinu í ensku samfélagi. Ung Verenika giftist Roy, Lávarðinum af Clynord. Hann á ekki stóra fjölskyldu en á tvö stjúpsystkini sem öfundast út í hina ungu og saklausu Vereniku og reyna að koma henni fyrir kattarnef.
Skáldsagan er eitt vinsælasta verk Harriet Lewis og kom fyrst út á ensku árið 1872. Bókin naut mikilla vinsælda á Íslandi áður fyrr sem hluti af Sögusafni heimilanna.
Persónurnar og notkun á tungumáli í verkinu endurspegla ekki skoðanir útgefandans. Verkið er gefið út sem sögulegt skjal sem inniheldur lýsingar á tíðaranda og skynjun manna sem tíðkaðist á tímum skrifanna.
Serían samanstendur af eldri sögum sem eiga það sameiginlegt að hafa verið eftirsóttar til lengri tíma í flokki rómantískra bókmennta. Bækurnar henta einstaklega vel þegar þú vilt gleyma þér í rómantík og ævintýrum gamla tímans.
Harriet Lewis fæddist árið 1841. Ritferill hennar fór hönd í hönd við ritferil eiginmanns hennar sem hún giftist árið 1860, en þau unnu saman að ýmsum ritverkum, m.a. spennuseríum. Harriet lést ung að aldri árið 1878, einungis 37 ára gömul. Hún lét eftir sig 41 skáldverk sem hafa verið þýdd yfir á fjölmörg tungumál.
Detaljer
Serie
Forlag
SAGA Egmont
ISBN
9788728281482
Sprog
Islandsk
Originaltitel
Svipurinn hennar
Udgivelsesdato
04-01-2023
Format
E-bog
E-bog format
REFLOWABLE
Filtype
Epub
DRM beskyttelse
DigitalVandmaerkning
Datamængde
757 KB
Varenr.
3077143
EAN nr.
9788728281482
Varegruppe
Lydbøger