Öruggt athvarf
0.0
( 0 )
Islandsk
Frá metsöluhöfundinum afkastamikla, Danielle Steel, kemur hér ógleymanleg saga um sorg og missi, en einnig þá von og hugrekki sem oftar en ekki fylgja.Pip Mackenzie er ellefu ára gömul en hefur þrátt ...
Forlagsbeskrivelse af Öruggt athvarf af Danielle Steel
Frá metsöluhöfundinum afkastamikla, Danielle Steel, kemur hér ógleymanleg saga um sorg og missi, en einnig þá von og hugrekki sem oftar en ekki fylgja.Pip Mackenzie er ellefu ára gömul en hefur þrátt fyrir það upplifað mikinn harmleik sem þjakar hana og móður hennar. Í göngutúr með hundinn sinn við strandlengju San Francisco kynnist hún listmálara sem sér í henni sína eigin dóttur. Fljótlega hefst með þeim mikill vinskapur. Móðir Pip, Ophélie, er efins í fyrstu en fljótlega er málarinn Matt Bowles orðinn nátengdur þeim mæðgum og tekst þeim með vináttu og kærleika að lækna sárin sem hafa þjakað þau öll fram að þessu.Hér kafar höfundurinn ofan í afleiðingar missis á fjölskyldur og kannar hvernig þær geta með sem bestu móti komist heilar frá honum.Myndin Safe Harbour, sem kom út árið 2007, er byggð á bókinni.Danielle Steel er mest seldi lifandi höfundur heims og hefur ritað yfir 200 bækur, þar með taldar skáldsögur, barnabækur, óskáldað efni, ljóðasafn og texta fyrir tónlist. Verk hennar hafa samtals selst í meira en milljarði eintaka um allan heim og hefur hvert þeirra komist á metsölulista á heimsvísu, þar með talið hjá New York Times, Wall Street Journal og The Sunday Times. Franska ríkisstjórnin veitti henni heiðursnafnbótina „Officier“ við reglu lista og bókmennta árið 2002 og „Chevalier“ við regluna „Legion d’Honneur“ árið 2014. Á milli skrifa stundar Steel mannúðarstarfsemi af miklum hug og býr til skiptis í París og San Francisco. Danielle Steel er níu barna móðir.
Detaljer
Forlag
SAGA Egmont
ISBN
9788727144856
Sprog
Islandsk
Originaltitel
Öruggt athvarf
Udgivelsesdato
26-11-2024
Format
Lydbog
Filtype
zip_mp3
DRM beskyttelse
DigitalVandmaerkning
Datamængde
373776 KB
Varenr.
3256535
EAN nr.
9788727144856
Varegruppe
Lydbøger